Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Hitt og Þetta

Blaður frá hinum og þessum

Það er ungt og það leikur sér

Gagnasafn

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

NY!!Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

.. erum á leið til NY, flýja bjartar nætur og bíflugnasöng.

æði gæði..

kremjur
IngalóSvalur

.. hmmmm. ..Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

...  hví er fólk hætt að kommenta hjá mér! hvað er það...

- allavega..

Ég vona að ég hafi engann móðgað með því að lýsa undrun minni yfir því að hr Ólafur Ragnar sem oft er kenndur við grís hafi fengið til sín eitt stk þyrlu vegna þreytu. En það er svo merkilegt að fólk ber svo takmarkaða virðingu fyrir karlinum. Við erum öll að velta þessu fyrir okkur og hvað hafi komið fyrir drenginn!! Tölum e.t.v. of niðrandi til hans.. Maður bar allavega meiri virðingu fyrir Vigdísi blessuninni.

- Annars ekkert nýtt, vorið komið í mig líkt og beljurnar sem fá að sletta úr klaufunum von bráðar! Ég er allavega byrjuð að sletta úr klaufunum - ætla meirað segja að sletta úr þeim næstu helgi þrátt fyrir vinnuhelgi!! allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.

- Frí frí frí á morgun, ahhh. Ekkert betra en virkir frídagar þar sem maður hefur allan tímann í heiminum fyrir sjálfansig og getur spókað sig um að vild. Kíkt í klassann og sund, enginn fyrir manni í heita pottinum!!!!

... Svo er ég næstum því að fá taugaáfall yfir þessu námi sem ég er að hella mér útí í haust! Þetta verður enn meiri pakki en ég átti von á svo ég held svei mér þá að ég muni ekki líta uppúr bókaskruddunum ef ég á að komast í gegnum þetta.. Skömmustulegur

... kremjur
flóin!

... ohhh ég er svo þreytt!!! hvar er þyrlan..???Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

... Rosalega hefur blessaður ræfillinn hann Óli verið þreyttur í gær, þreyttur á kellingunni með brotið læri, endalast að snúast í kringum hana. Hann hefur frengið nóg af þessu öllu saman. Orðið langþreyttur og ekki tekið annað í mál en að fá þyrluna á staðinn og sleppa við að hossast í bíl. Þreyttur, þvældur, þunglyndur og bældur..  Þyrluna takk!!  

ennnnnnnnnnnn.. ég er að fara að vinna kv í dag, kv á morgun. Stuð og stemning.  Mig sem langar svo á hestbak og kíkja í sveitina. Horfa á belju skíta úti á túni og naga strá .. eða eitthvað bara
Ullandi


Flugublogg!!Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

.. Með vorinu koma flugur og allskonar kvikindi og ég kann því afar illa! Ég þooooooooooooooooooooooooooli þessi kvikindi ekki og þau gera mér lífið leitt. Í gær var ég að keyra í sakleysi mínu þegar huges randafluga byrjaði  að böggast í bílnum mínum, sveima í kringum húddið. Ég var svo ómerkileg að opna ekki fyrir henni en hennar helsti draumur var að komast inní bílinn minn því þar ætlaði hún að fremja ódæðisverk og drepa mig! hún var með broddinn alveg tilbúinn - ætlaði að ráðast á mig og kála mér .. bara sísvona!

Svo eru blessaðar köngulærnar farnar að spinna, svei mér þá .. ef maður situr smá stund úti þá eru þær búnar að festa mann með vef við stólinn! .. hvaðan koma þessi kvikindi??? ohhhh..


en hvað um það..


Ég er hætt við að hætta að blogga - en ég var sumsé hætt að blogga. Ég verð að tjá mig endrum og eins og lífsins gang og rífa mig yfir hinum og þessum málum.


Nú ætla ég að rífa mig útaf megrunarblaði sem barst með fréttablaðinu í dag.

í blaðinu eru færð rök fyrir því að það sé bara hið besta mál að vera offitusjúklingur og maður eigi bara að sætta sig við það! Reynt er að færa rök gegn þeim merkilegu vísindum að offita geti verið lífshættuleg og haft í för með sér hina ýmsu sjúkdóma. Það er staðreynd sem flestir vita. Þeir sem þjást af offitu eru að gera líkama sínum mikinn grikk - við eigum bara þennan eina og því ekki að fara vel með hann blessaðan. Eins eru sjúkdómar á borð við háþrýsting og sykursýki mjög alvarlegir og þurfa sérstaka meðhöndlun. Háþrystingur getur svo sannarlega leitt til dauða og hefur maður nú aldeilis séð dæmi þess að fólk fari illa útúr háþrýsting!!!!

Það er þó satt og rétt að gínurnar sem sjást í búðargluggum eru oft valdur anorexíu hjá ungum stúlkum og það má því skoða þau mál. En ekki að vera að hvetja fólk til að vera sátt við aukakílóin því það er aldrei gott að vera alltof feitur!!

Ennnnn.. svo ég hætti að tuða og tali um eitthvað skemmtilegt - ég fór í skemmtilegt vinnupartý og skemmtilega vorgleði LSH á föstudaginn. Þar var sungið, dansað og spjallað, rauðvíni rennt niður með dass af gini og glensi.
Næsta laugardag verður svo heldur betur júró og kosningaglaðningur þar sem sungið verður og dansað frameftir nóttu!
NY bíður okkar svo .. ekki nema rétt rúm vika í það og þvílík gleði sem það verður!!

Nóg í bili - ætla út í sólina - halda uppá megrunarlausa daginn með því að éta eitt kg af ís, nokkur marssúkkulaði og einn feitan borgara - ég meina þessir feministar eða hvað á að kalla þá segja það bara hið besta mál!!!! Svalur

eitt upplífgandi myndband í lokin, þetta er meðfætt hjá okkur stelpunum að frekjast svona og valta yfir karlpeninginn ;o) hmmm ..

http://www.metacafe.com/watch/498894/why_women_rule_the_world/

tjekk it át!

kremjur
Ingaló

Föstudagurinn 13 .. happadagur??Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

.. það er spurning..

Dagurinn í dag (13/4)  byrjaði bara ekki þar sem  gat ekki vaknað.. gat ekki vaknað... bara gat það ekki!! ólíkt mér þessa dagana þar sem ég á í mesta basli með að sofa og hlakka alltaf voða mikið til að vakna á morgnanna! ..  Brosandi

.. ennn.. af þessum sökum svaf ég eins lengi og ég mögulega gat, staulaðist í vinnunna með bauga, hausverk og hor. Tilhugsunin um næturvaktina var ekki góð - fékk að fara óvenju snemma heim af morgunvaktinni til að klára svefnin svo ég myndi lifa af næturvaktina. Ég skreið beint í bælið mitt og hélt áfram að sofa, dreymdi furðulega hluti. Eftir 5 tíma svefn (hvað er það??) þá vaknaði ég - síminn hafði hringt og ég ekki vaknað - óvenjulegt! hringjandinn var konan sem ég hef verið í sambandi við varðandi námið sem ég sótti um í HR! .. ég fékk sjokk .. skildi ekki afhverju hún var að hringja í mig.. kannski til að segja mér að því miður þá væri ekki pláss fyrir svona vitleysinga og svefnpurkur í náminu.

ennn.... - ég fór beint í tölvuna þar sem hún svaraði ekki símanum - löngu farin heim eftir vinnudaginn! ..  jæja.. og viti menn - mín beið bréf um það að ég hefði komist að hjá þeim. Roooooooooooooooooooooooooooosalega er ég ánægð og kát með það!! ég hoppaði því hæð mína, pantaði pizzu handa okkur Sölva, fór svo í vinnunna og núna sit ég hér glaðvakandi og kát! ..

Ég er að raða í námskeiðin og helst vildi ég byrja á morgun í þessu námi, ótrúlega spennandi. Svo ætlum við hjúin að reyna eftir mestu og bestu getu að komast í smá pakka erlendis.. ég get a.m.k. tekið hluta af náminu þar. 

 .. Svo fékk hún Dagbjört systir mín nýja vinnu, samgleðst henni ótrúlega, hún er svo eftirsóttur kennari. Að mínu mati ætti að hampa svona fólki - fá það í launaviðtal því það er gjörsamlega óþolandi að góðir og metnaðarfullir kennarar fói sömu laun og slefandi aumingjar sem leggja engan metnað í kennsluna. Hver hefur ekki haft þannig kennara!!?

nóg í beeeeli
kv frá næturstrumpi

Rannveig ristar brauð!Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

Einu sinni stóðu 15 Hafnfirðingar fyrir utan Háskólabíó. Þá kom Reykvíkingur og sagði: Af hverju standið þið hér í stað þess að fara á bíómyndina?
-Við vorum að fara á myndina sem er verið að sýna en föttuðum þá að hún er bönnuð innan 16!Ullandi 
jajaja voða fyndið!


.. ég þarf að biðja hafnfirðinga afsökunar! Afsökunar á því að taka þátt í hafnfirðingabröndurunum þegar þeir voru og hétu á sínum tíma, þeim fer fækkandi þar sem hafnfirðingarnir stíga nú vitið;). Hafnfirðingar eru ekki svo vitlausir þegar allt kemur til alls, Það er a.m.k. nógu mikið vit í kollinum á þeim til að mótmæla þessu skítaálveri!

"Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík í íbúakosningu í dag. Alls greiddu 12.747 atkvæði í kosningunni og 6382, eða 50,06% hafnaði stækkuninni en 6294 eða 49,37% sögðu já. "  skv MBL

Það stóð tæpt en þetta er almennilegt. Rannsla Rist getur farið að framleiða brauðristar einhversstaðar annarsstaðar.

Annars er ég á næturvakt og þá er gott að sitjast niður og pikka á lyklaborðið.

- Ekkert nýtt
- Næturvaktahelgi
- páskaegg komin í hús, nammi namm.
- Hlakka til að eiga góðan og massaðan frídag á mánudaginn, þarf m.a. að hringja og rífast í launadeildinni þar sem launaseðlarnir mínir frá áramótum eru allir í rugli, launafulltrúarnir eru með króníska ruglu. ALDREI ALDREI ALDREI skal þetta vera rétt!! Óþolandi skítur!

góður nótti og sofa vel -

Kremjur
Ingan

... ahmaramm..Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

. ég er ekki dauð, þetta kallast bara bloggleti!

Ég er ánægð með að vorið sé að koma, það er vor í lofti og nú má þessi snjófýla og frost hverfa á bak við lás og slá. 
Elsku snjór ég tek þér opnum örmum næsta vetur aftur!!

Ég er óánægð með bankana

Ég er ánægð með helgina, hún var æði. Við fórum m.a. í mat til Hrundar og Burkna og fengum alveg hreint geggjaðan mat. Þau eru snilldarkokkar og taka höfðinglega á móti gestum sínum. Næst eru það við Sölvi sem höldum matarboðið en við erum sumsé 4 pör sem skiptumst á að bjóða í mat og alltaf er þetta jafngaman ;o). Við kýldum vömbina svo aftur út í gær þar sem tengdó bauð okkur út að borða á 3 frakka. Æðislegur matur þar. Maður er því vel nærður eftir þessa helgi!  

Ég er óánægð með páskafríið mitt, það er bara alltof stutt. Það er ekkert frí!!

Ég er óánægð með að stofnfrumurannsóknir verði ekki leyfðar hér á landi, mér finnst það hræðilegt. Margra ára vinna vísindamanna að baki. en þeir sem ekki leyfa stofnfrumurannsóknir eru e.t.v. þeir sem eru á móti fóstureyðingum.. "Bush" er víða.  Rannsóknir á borð við þessar geta gert það að verkum að hægt verði með tíð og tíma að lækna MND og fleiri taugasjúkdóma sem dregur fólk til dauða á skelfilegan hátt!! 

Annars er ég ánægð með flest allt.. ég er ótrúlega ánægð með ferðina okkar til NY og klukkan tifar óvenju hratt þessa dagana. Það fer að koma að þessu.. svo styttist í að ég fari að naga páskaeggið mitt;o)

kremjur
Ingaló

Þvílíkur glæpur!!!!!!!Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

... "Íbúðalán getur verið til 25 eða 40 ára og er jafngreiðslulán (annuitet). Hægt er að greiða upp lánin hvenær sem er, uppgreiðslugjald er 2%"
 (upplýsingar frá heimasíðu kbbanka)

m.ö.o
 ef við kaupum okkur íbúð og vinnum hellings milljónir í lottói og ákveðum að borga lánið upp þá smyr þessi peningasuga á okkur 2% fyrir að borga lánið! það er ekki hægt að saka þessa menn um hugmyndaleysi, þeir búa til orð einsog uppgreiðslugjald til að hagnast, okra og stunda fáránleg viðskipti!!! 
. ef tekið er 20 millj kr lán þýðir það að greiðslubyrðin er mikil, einhver titlingaskítur fer í íbúðina sjálfa en restin fer í vexti til bankans. Þegar búið er að gera þetta í nokkur ár og einstaklingurinn verður skyndilega fjársterkur og ákveður að borga íbúðina sína upp þá er honum refsað með því að smyrja á lánið ránsgjöld til að láta hann borga aðeins meira. 

20 millur borgaðar + 2% af því =400 þús auakalega.. !!!!!


Þetta er ekkert nema helvítis rán.. ég vil kalla þetta gjald
  ránsgjald!!!!!!!!

í hvernig þjóðfélagi búum við...  er fólk virkilega að láta þetta ganga yfir sig??? 
 

... þáÞorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

... er ég búin að skila öllum þeim fylgigögnum og dóti sem skila þarf til að komast að í náminu sem ég er að ota mér í. .. mér líður einstaklega vel með það. Líður eiginlega einsog ég hafi verið að skila frá mér verkefni í hjúkrun fullorðinna 8, ekki Skeiningum fullorðinna 8.. það er allt annað fag... djóóóóóóóókss.. aðeins til að taka þátt í spauginu frá spaugurum!!
Nánari lýsing á náminu kemur síðar!

ennnnnnn.... Við Sölvi fórum í leikhús á laugardaginn, við förum aldrei í leikhús! Nú biðu okkar boðsmiðar svo við skelltum okkur. Sýningin heitir Leg og er eftir Hugleik Dagsson, einstaklega vel heppnuð og skemmtileg sýning, afbragðs leikarar  (ég er kannski ekkert dómbær á leikhæfileika fólks þar sem ég hef lítið viðt á slíku)  Í leikhúsinu var líka allt fræga fólkið úr X - factor, myndavélar sem eltu þau og allt tilheyrandi... Ótrúleg hvernig hægt er að verða frægur söngvari án þess að kunna neitt að syngja!

.. Svo er vert að taka það fram að klukkan tifar og tifar, sem þýðir að biðin styttist og styttist.. ekki nema einhverjir tveir mánuðir í NY. vei vei vei vei vei vei.. 

..Það var ekki fleira. 

kremjur
Ingan

 

Bloggleysa!!Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir

.. Er bara eitthvað tóm í höfðinu..

.. Ég er alltaf með martröð, alltaf að dreyma lík og alltaf að hugsa um rottur - ég held að það búi rotta í klósettinu mínu.

...... Kom í vinnuna kl 15 í dag og ætla að vera til morguns,
sami skortur á starfsfólki - Siv.. hvar eru þessir útlendingar??
- en ég fæ þá ekki martröð á meðan ég er hér, vonandi eru þetta einungis næturmartraðir en ekki dagmartraðir því ég ætla að soooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooofa allan daginn á morgun... ég er þreyttur einstaklingur og nóttin er rétt að byrja!

Góða nótt

Næturrottan Óákveðinn
Síða 1 af 3